Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Fara þá ekki innheimtufyrirtækin á vanskilaskrá!

Fara þá ekki innheimtufyrirtækin á vanskilaskrá, þegar þau missa tekjur sínar næstu misserin.  Nógu djöf... hafa þau gengið hart að fólki, sl. mánuði, ásamt því að leggja prósentu innheimtuþóknun af skuldum oná skuldina. (sem er ekki heimilt frá 1.feb). Það yrði nú fínt og fyndið ef Intrum, Momentum og sambærilegir kollegar lentu á vanskilaskrá Lánstrausts!

Nú hefur það komið fram í umræðum og yfirlýsingum bankanna o.fl. að kröfuhafar gömlu bankanna, þ.e. erlendir kröfuaðilar fái ekki nema 20-30% upp í kröfur sínar á gömlu bankana.  Eignir þeirra rýrnuðu til heljar, með miklum afskrifum o.s.frv. þegar menn opnuðu bækurnar.  Með öðrum orðum, bankarnir gömlu ætla ekki að borga skuldir sínar, þess í stað færðu þeir eignir "sínar", sem eru skuldir okkar lántakenda hjá gömlu bönkunum, yfir í nýju bankanna og ganga hart fram í því að berja á okkur til greiðslu á því sem þeir telja að við skuldum þeim "eignir"sínar.  Það verður að líta á þá staðreynd að þetta er til frumvarp er til mikilla bóta, þó ég hafi ekki verið hrifinn af þessu stjórnarmynstri í upphafi, en hverjir komu okkur í þetta?  Það er greinilega verið að gera eitthvað áþreifanlegt, sem léttir lund landans.   Persónulega vildi ég semja sjálfur við kröfuhafa gömlu bankanna og bjóða þeim mun betur en það sem þeim hefur verið boðið hingað til.  Ég er til í að bjóða þeim 40-45% af kröfum þeirra í "eignum" mínum.   Bjóði aðrir betur.  Ég hlýt að standast aðþjóðlegt álagspróf þessara aðila, fyrst gömlu bankarnir stóðust það 12. september, 20 mínútum fyrir hrun, sem bankaverktakinn Fjármálaeftirlitið ehf, tók að sér að  framkvæma fyrir þá, SVART.


mbl.is Svigrúm skuldara aukið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skortur á skorti...........á hverju

Fyrir utan Toyota eru fleiri hundruð óseldir bílar, enda bílaumboð.  Hvað með það þó stjórinn hafi sama bílinn áfram til afnota, þarf e-h að vera eyða tímanum í eigendaskipti þegar engir kaupendur eru af svona bílum í dag.  Spurning sem ég spyr mig hins vegar hvernig í ósköpunum veit þessi starfsmaður um ráðningarkjör forstjórans og hans samningstöðu gagnvart eigendum fyrirtækisins.  Það er spurning sem fréttamaðurinn hefði átt að spyrja.  En við getum ekki ætlast til alls.  Því miður kom þessi ágæti bifvélavirki sér sjálfur í þessa aðstöðu. 


mbl.is Bloggari rekinn fyrir skrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Svavar Guðmundsson
Svavar Guðmundsson

Lífið er brekka, en um leið og maður setur í hlutlausan þá rennur maður afturábak

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband