Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Vinur minn er snillingur

Vinur minn, Sigurgeir Orri, er hugmyndaríkur kappi, góður kokkur, drenglyndur og traustur vinur.  Hann var mér lengi vel fyrirmynd í öllum mínum prakkarstrikum frá 10-14 ára en þá hætti ég að vera prakkari, en hann hélt áfram og er enn að gera e-h af sér, sem ekki verður fært til bókar hér.  En hann er líka eldklár kvikmyndaframleiðandi og í gær var ég að rifna úr stolti yfir nýjasta afreki hans, en ég horfði ásamt tæplega 200 manns á nýjasta meistarastykki hans, sem er heimildamynd um sögu Alfreðs Elíassonar og Loftleiðaævintýrið.  Ég er er búinn að fylgjast með gerð myndarinnar undanfarin misseri, og útkoman var algjör snilld, útfærslan góð, því efnið er vandmeðfarið að mörgu leyti.  Hann náði að gera sögunni einstaklega góð skil og framsetningin er afar grípandi og minnistæð og margir skemmtilegir viðmælendur sem krydda frásagnir.  Í raun ætti að sýna myndina strax í sjónvarpi landsmanna, því myndin sýnir svo mikla dirfsku, áræðni og kjark örfárra manna á erfiðum tímum.  Tímum sem einkenndust af höftum, spillingu, gjaldeyrisskömmtun og annarri fyrirstöðu fyrir einkaframtaki kraftmikilla einstaklinga sem létu sér ekki segjast, þ.e. létu ekkert stoppa sig, þvert á móti elfdust sögupersónunar við hverja þolraun og breyttu miklu í sögunni í miklu pólitísku andstreymi.  TIL HAMINGUJU MEÐ FRÁBÆRA MYND, kæri vinur.  Bleik rós í hnappagatið
orri_690082

eru til 0% vextir

Þetta er afar sérstakt frávik. Allt er mögulegt í Bandaríkjunum eins og sagan sýnir. Bandaríkin eru sennilegast mest sveigjanlegasta hagkerfi heimsins. Engin fyrirvari á uppsögnum, né ráðningum og 0% vaxtastig.

Tökum þá okkur til fyrirmyndarog lækkum vexti hér í einum grænum. Munurinn á okkur og USA er sennilega að þeir framleiða flestar neysluvörur oní sig, meðan við þurfum að kaupa þær utan frá fyrir kolrangt skráð gengi á erlendum gjaldmiðli.


mbl.is Vextir 0-0,25% í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vil fá Davíð aftur í pólitík!

Hann virðist vera baráttumaðurinn sem þessi þjóð þarfnast, gefst aldrei upp!!.  Ég hugsa að hann klægi í puttana að koma aftur í þingsal og hrista upp í honum.  Það er fásinna að kenna honum um ástandið, það eru margir faktorar sem gera það að verkum að þetta fór svona, s.s.

63 þingmenn, fjármáleftirlitið, heims-lánsfjárkrísan, ónýtur gjaldmiðull sem þjóðin vildi ekki skuldsetja sig í, tók þess í stað erlend lán, sem buðust á öllum götuhornum.  Seðlabankinn á líka sök á þessu, ekki er ég að draga úr þeirra vinnubrögðum, með aðhaldsleysi, ónógum gjaldeyrisforða, okru stýrivaxtatæki o.s.frv.

Mér finnst Davíð alltaf skemmtilegur gæi, það er ekki hægt að segja um marga svo mikið er víst.  Ég hugsa að þó Davíð sæti við skriftir heima við, þ.e. væri ekki Seðlabankastjóri, yrði jafnmikið hlustað á hvert orð sem hann segði, og túlkað þvers og kruss af allri þjóðinni, það verður ekki sagt um margan stjórnmálamannin, s.s. eins og Össur, Ögmund, Valgerði o.s. frv.  hún er fljótgleymd vitleysan sem kemur frá þessu liði.


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

smekkmaður

Helv.... að hafa misst af þessu uppboði, ég átti langleiðina upp í þetta djásn. Ég ætla mér að bera saman verðmætamat 18. aldarinnar í þessari mynd til samaburðar við hlutabréf 21 aldarinnar, hvort er verðlausara eða verðmætara. Ég myndi a.m.k. fjárfesta í konubrjósti fyrir allan peninginn
mbl.is Himinhátt verð fyrir ögrandi mynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

krónan, þessi elska

Spurning hvort hún verði sett á flot í djúpu eða grunnu lauginni.  Persónulega vildi ég setja hana í andapollinn eða barnalaugina, we will see how it goes.

Mér finnst ótrúlega klént af Seðlabankanum að nota setninguna "aðhaldsöm peningamálastefna" í greininni.  Hvað þýðir þetta í dag???  Greinilegt að kverúlantarnir innan Seðlabankans greinir ekki á um hvað þetta þýðir, hvorki fyrir eða í kreppu!!!


mbl.is Millibankamarkaður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Svavar Guðmundsson
Svavar Guðmundsson

Lífið er brekka, en um leið og maður setur í hlutlausan þá rennur maður afturábak

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband