Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Gjaldþrota þjóð=Fíkniefnalaus þjóð

 

Jákvæð hliðarverkun kreppunar

Tveir eldri menn voru að ræða saman í morgun þegar ég rakst á þá, ég þekki þá báða vel.  Nú auðvitað var "ástandið" umræðuefnið sem aldrei fyrr.  Síðan segir annar þeirra þegar við erum að ljúka spjallinu, strákar, það er ekki alveg allt neikvætt við kreppuna!?  Nú segjum við??  Ísland er að verða dóplaust land (ólögleg fíkniefni), þ.e. að dópsalar landsins geta ekki lengur fengið líkt og aðrir gjaldeyrir til að kaupa ósómann.   Þannig að Ísland vinnur sér það kannski til frægðar ásamt öllu undangengnu að verða fyrsta landið þar sem engin ólögleg eiturlyf eru til staðar í landinu!!!!!! 

 


Færeyskar konur

Mr. Árni Djonsen, ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að þú hafir mismælt þig eina ferðina enn, en það er ekki neikvætt í þeim skilningi, því ég veit þú áttir við að við viljum Færeyskar KONUR, ekki krónur.  Óska ég eftir að þú leiðréttir þetta hið fyrsta.  Fyrirsögnin verður í stað þessi.

Íslendingar fá Færeyskar konur í skiptum fyrir íslenskar krónur.


mbl.is Árni Johnsen vill færeyska krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyfjafræðing í Seðlabankann ASAP!

Davíð, you have to cut your pills into 1/2 before you take them. Eru bleikir bananar á matseðlinum í bankanum. 18% stýrivextir er djók. 70% allra fyritækja í landinu eru með erlend lán, á hvern heldur að þetta bíti. Fyrst og fremst verðtryggð lán (heimilin í landinu) og sjúklega háa yfirdráttavexti. Á að reyna kveikja í brúnarústum, hef aldrei vitað til þess að það sé hægt! Ég skora á fólk að hætta að borga skuldirnar sínar og mótmæla þessari geðsýki, mótmælum líkt og gerðist 1949 á Austurvelli. Ég vona að Kári í Decode klári sem allra fyrst að finna arfgengi scitsoprenia -gensins, það er komið langt á vel þar á bæ, en þá vilja hugsanlega útlendingar kaupa þeirra niðurstöður, hvurn fjandann hafa þeir að gera við jafn geðveikar söluvænlegar niðurstöður, þegar þær eiga heima hér!!! Seljum Seðlabankann úr landi á brunaútsölu, það er okkar verðlausasta eign. Verðum fyrst allra þjóða til að gera slíkt. Við urðum fyrst allra þjóða til að láta alla banka fara á hausinn á sama tíma í lýðræðislegu þjófélagi. Heimsviðburður.
mbl.is 10% styðja Davíð í embætti seðlabankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndasnauð

Þetta er ekki mjög sexý nafn á banka hvernig sem litið er á það.  Greinilegt að daufir ríkisstarfsmenn eru að hugsa upphátt þessa dagana.  Þeir hafa litið á nafngiftina sem sparnað, en ekki kostnaðinn við að nafnbreytinguna.  Er ekki óþarfi að vera eyða tímanum í þetta núna, miklu nær væri að sameina tvo banka og finna síðan e-h sexý nafn á þann sameinaða.  Menn verða að hugsa aðeins lengra í þessum efnum
mbl.is Landsbankinn verður NBI hf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu tímabært

Þessi aðgerð er löngu tímabær, og hefði átt að koma upp fyrir nokkrum vikum síðan.  Er í raun ótrúlegt að svo sé ekki.  Það þarf að loka öllum hlutabréfamörkuðum heims í 1/2 mánuð eða svo, svo komist á almennur vinnufriður svo aðilar og stjórnmálamenn séu ekki jafn gríðarlega uppteknir af daglegu hruni þannig að allar björgunaraðgerðir verða fyrir vikið einungis skammtímabjörgunaraðgerðir.


mbl.is Leikhlé tímabært á mörkuðum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Svavar Guðmundsson
Svavar Guðmundsson

Lífið er brekka, en um leið og maður setur í hlutlausan þá rennur maður afturábak

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 277

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband